ArnaHross // Allt um Íslenska hestinn ! ;d
13.2.2008 05:14:37 / arnahross

Spænska sporið! =D

Hérna eru upplisýngar um það hvernig á að kenna hestinum sínum Spænska Sporið!



Eyjólfur Ísólfsson og Rás frá Ragnheiðarstöðum æfa spænska sporið.



____________________________________________________________



Skef 1

Byrjað er að æfa spænska sporið í hendi, t.d. í hringgerði í ró og næði. Gott er að láta hestinn hreyfa sig aðeins áður en byrjað er að æfa. Beisli er haft á hestinum og knapinn heldur í tauminn (sjá mynd að ofan) svo hesturinn fari ekki af stað. Annars á taumurinn að vera í friði. Byrjað er á einum fæti til að byrja með. Knapinn staðsetur písk fyrir neðan hné hestsins og pikkar til hesturinn hreyfir fótinn. Hesturinn þarf að skilja að pískurinn biður hann um að færa fótinn frá áreitinu (...og ekki bara áfram heldur upp í framhaldinu). Þegar hesturinn hreyfir fótinn frá á að hrósa honum með litlum brauðmola eða fóðurköggli til að sýna honum að svörunin var rétt. Svo er haldið áfram og hrós gefið í hvert skipti - þó alls ekki alltaf nammi, bara smá inn á milli annars verður hesturinn frekur. Ef hesturinn er tregur að hlusta þarf að vera ákveðinn við hann og reka hann frá sér - láta hann sperra sig við og hlusta. Munum þó að nota aldrei ofbeldi eða reiði - það hamlar árangri og er rangt gagnvart hestinum.

Þegar hesturinn hefur náð að hreyfa báða fætur frá áreiti písksins er búið að brjóta ísinn. Það er byrjunin. Munum að hafa æfingarnar ekki of langar í senn. Gott er að gera æfinguna þegar það gefst tími til, t.d. rétt áður en maður fer í reiðtúr og svo framvegis. Helst að æfa aðeins á hverjum degi enda viljum við að hesturinn svari písknum af næmni áður en hann er beðinn um að hækka fótlyftuna.


Skref 2

Þegar hesturinn er orðinn góður í að færa fótinn má fara að biðja hann um að færa hann fram og upp. Það er það erfiðasta í æfingunni og tekur mikið á báða aðila - hesturinn þarf að hlusta og knapinn að kenna. Hesturinn þarf að skilja að pískurinn stýrir hreyfingu fótarins - á að færa fótinn frá písknum. Knapinn pikkar með písknum ca. á miðjum fótlegg fyrir neðan hné og fær hestinn til að færa fótinn frá. Í fyrstu skiptin á hesturinn eftir að vera erfiður að svara en haldi knapinn ró og stillingu og hrósi hestinum á hesturinn eftir að geta skilið knapann. Mikilvægt er að æfa þetta á hverjum degi, jafnvel oft en lítið í senn (t.d. þegar maður er að kemba hestinum o. sv. frv.). Aðalmálið er að halda hestinum jákvæðum.

Þegar hesturinn lyftir fætinum hættir knapinn að 'pikka' í örstutt augnablik og byrjar svo á því aftur í miðri hreyfingu til að fá hestinn til að lyfta fætinum hærra. Knapinn umbunar hestinum með því að taka áreitið af og setur það aftur á til að biðja hann um að gera aðeins meira. Gott er að leyfa hestinum að hlaupa frjálsum í gerði (ef maður er í gerði) inn á milli til að umbuna honum og hvíla hann frá æfingunni.

Þegar hesturinn er orðinn leikinn að færa fótinn frá písknum (þegar hann er kominn með fótinn nokkuð frá jörðu) en gott að halda örlítið við tauminn Gott er að nikka hestinn létt og rólega með taumnum á meðan maður biður hann um að lyfta hærra m.a. til að fá hann til að reisa sig við og sperra sig - það hjálpar honum til að lyfta hærra (svo hann hangi ekki allur á framhlutanum). Þetta er þolinmæðisverk fyrir báða aðila svo knapinn verður að vera yfirvegaður og gefa þessu tíma. Líklega tekur það allt innitímabil hestsins að læra sporið. Munum að ofæfa ekki - annars verður hesturinn leiður og/eða pirraður. Æfingin æfð á þennan hátt þar til knapanum finnst að hesturinn sé orðinn mjög leikinn í þessu - svarar písknum hratt og vel. Þá má fara að biðja hann um að lyfta en hærra en á þessu stigi á hesturinn að lyfta rétt undir eða í miðjum vinkli (ekki endilega í vinkil - nema skilningur hestsins sé svo hraður).


Skref 3

Nú er auðvelt að fá hestinn til að lyfta fætinum sæmilega hátt. Þá er haldið áfram að biðja hann um að fara aðeins hærra með fótinn. Munum að hrósa vel og gefa nammi inn á milli. Þegar hesturinn er farinn að krafsa nokkuð vel bara með því að finna létt fyrir písknum má fara að gera æfinguna á baki. Best er að gera það í gerði til að byrja með og hafa umhverfið námsvænt (þ.e. engir hestar sem trufla hestinn). Sumum finnst betra að hafa eitthvað hljóðmerki til að hafa með písknum - en passa verður að það sé ekki hvetjandi því annars misskilur hesturinn hvað knapinn vill.

Í flestum tilvikum bregst hesturinn lítillega við písknum á baki - en ef knapinn hefur æft æfinguna sérstaklega vel í einhvern tíma (sé búinn að undirbúa hestinn vel í hendi) á hesturinn að tengja saman fljótt og vel. Svo er æfingin æfð dálítið í hverjum reiðtúr og á endanum verður þetta glæsilegt spænskt spor! Þetta er bara eins og með námsmenn í skóla - því meir sem þeir æfa sig og eru jákvæðir gagnvart náminu - því betur gengur þeim. Þetta gildir bæði um knapa og hest enda þarf knapinn að vera leikinn í að hafa stjórn á skapi sínu sem og að hafa þolinmæði og leikni til að þjálfa hestinn til að gera sporið. Númer eitt er að hafa trú á sjálfum sér og hestinum, nota ekki ofbeldi, gefast ekki upp og vera jákvæður! :)

Mikilvægt er að missa ekki sjónar á markmiðinu (þ.e. að hesturinn stígi spænska sporið;) og að vera óskaplega þolinmóður, skilningsríkur og vinnusamur. Bera verður mikla þolinmæði og skilning til hestsins - ef ekki mun hesturinn gera það sem hann gerir alla daga - endurspegla líðan knapans!


ÞVÍ MEIRI JÁKVÆÐNI - ÞVÍ MEIRI ÁRANGUR!

St��hestur m�n ! ;d

"Image
     Kraftur frá Bringu :* 

Kraftur frá Bringu sigraði
fimm ganginn á HM í
Hollandi 2oo7 && hlaut
einnig góða einkun fyrir
töltið með einkunina 9,17 (:

RSS tengill