13.2.2008 05:14:37 / arnahross
Múkk!
Múkk
Múkk er bólga og útbrot sem kemur oft í kjúkubætur á hestum á því tímabili sem
hárskipti fara fram (hárlos á vetrum). Þetta er ekki hættulegur sjúkdómur en getur
orðið erfiður viðureignar og veldur oft helti. Múkk lýsir sér sem hrúður af útferð úr
bólginni húðinni og svo myndast oft djúp og viðkvæm sár. Ef hestur er með múkk
skal sápuþvo sárið vel, leysa hrúðrið upp og þegar húðin er orðin þurr skal nudda vel
inní hana múkkáburði eða öðrum súlfaáburði.