ArnaHross // Allt um Íslenska hestinn ! ;d
13.2.2008 05:14:37 / arnahross

Hrossasótt! / Meira

Hrossasótt / Meira

Hrossasótt er samnafn sjúkdóma í kviðarholi hrossa. Yfirleitt er orsökin truflanir í

meltingarvegi, magaoffylli, stífla, vind- eða krampakveisa eða garnaflækja. Orsakir

hrossasóttar má oftast rekja til snöggra breytinga á fóðrun og fóðri, t.d. þegar

hestar eru teknir á hús fyrri hluta vetrar.

Hrossasótt er mjög bráður sjúkdómur. Hesturinn hættir skyndilega að éta, verður

órólegur, slær til taglinu, krafsar með framfótum, slær afturfótum fram undir kvið,

stjáklar um, leggst og stendur á víxl og sýnir almennt öll merki um vansæld og

vanlíðan.

Við miklar kvalir getur slegið út svita á hestinum og hann fleygir sér niður og veltir

sér sitt á hvað. Á miklu ríður að ná til dýralæknis sem fyrst. Ef maður kemur að hesti

sem liggur en hefur einkenni hrossasóttar skal reka hann strax á fætur og reyna að

láta hann hreyfa sig (gott er að teyma hann upp og niður brekku). Batamerki er

þegar loft og tað fer að ganga aftur af hestinum. Þar til læknishjálp berst skal þess

gætt að hesturinn skaði sig ekki í verstu verkjaflogunum.
Meira.

St��hestur m�n ! ;d

"Image
     Kraftur frá Bringu :* 

Kraftur frá Bringu sigraði
fimm ganginn á HM í
Hollandi 2oo7 && hlaut
einnig góða einkun fyrir
töltið með einkunina 9,17 (:

RSS tengill